Í dag, 9. desember 2021 kl. 14:00, fer fram fimmti fjárfestadagur Marel með fjárfestum og markaðsaðilum. Þessi fjárfestadagur er jafnframt sá síðasti í 360° viðburðaseríu félagsins í nóvember og desember, hver með sínu þema.
Yfirskrift fundarins í dag er “Sjálfbærni” en þar munu lykilstjórnendur Marel, þar á meðal Árni Oddur Þórðarson forstjóri, Þorsteinn Kári Jónsson forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla og Gréta María Grétarsdóttir framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brim, fara yfir hvernig Marel, með stöðugri nýsköpun og nánu samstarfi við viðskiptavini, leggur lóð sína á vogarskálarnar við að tryggja sjálfbær, örugg og holl matvæli til ört vaxandi heimsbyggðar.
Skráning fer fram hér. Upptaka af fundinum, ásamt fyrri fundum verður aðgengileg á marel.com/cmd360.